26.4.2022 | 06:17
Móða á speglinum
Huganum má líka við villugjarna þoku, þar sem eigrað er um í hringi, villu og svima. Þegar hugsun vekur upp kvíða, efa eða skeytingaleysi, orsakar hún óuppfylltar væntingar.
Þegar hugsunum er leyft að menga hugann með tvískynungi og tortryggni, í stað orku og öryggis, verður viðhorfið til veruleikans fullt af ranghugmyndum.
Hliðin sem snúið er að heiminum mótast fyrst og fremst af rökfastri stofnana uppfræðslu og fordómum, á kostnað sköpunargáfunnar.
Athugasemdir
Hálfvankaður eftir þá ringulreið sem að okkur er haldið, af fjölmiðlum og stjórnvöldum heimsins, þar sem maður hefur staðið sig að því að tuða í sífellu það er ekkert eðlilegt við þetta
þá hefur mér þótt sem um athyglisverða pistla í þessu bloggi sé hér að ræða Hef rennt í gegnum nokkra þeirra og hugsað, þarf að fylgjast með þeim næstu, því þeir virðast mér ríma við eitthvað sem eðlilegt er, heilbrigð lífsgildi.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 26.4.2022 kl. 10:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.