24.12.2008 | 12:17
Gullna reglan.
Gullna reglan er einföld; gerðu öðrum það sem þú vilt að þeir geri þér, ef þú værir þeirra sporum. Þessi regla nær út fyrir allt og er lögmálið sem segir við uppskerum eins og við sáum. Þú getur ekki breytt eða umsnúið þessu lögmáli, en þú getur aðlagað þig að því og þannig notað ómótstæðilegt afl þess til að ná þínum æðstu markmiðum, sem þú gætir ekki án þess hjálpar.
Þetta lögmál nær ekki einungis til gerða þinna, hvort þú sýnir öðrum ósanngirni eða velvild, það gengur miklu lengra en það, því það nær til hverrar hugsunar sem þú hugsar. Því skalt þú hugsa til annarra eins og þú vilt þeir hugsi um þig. Lögmálið sem gullna reglan er byggt á byrjar að hafa áhrif til góðs eða ills um leið og hugsunin verðu til. Með því að virða þetta lögmál og nota þessa gullnu reglu verður heiðarleiki sjálfkrafa til, þú hefur ekki efni á að hata, öfunda, lítillækka eða fara illa með nokkra manneskju og þú hefur ekki heldur efni á að svara í sömu mynt þó einhver komi illa fram við þig.
Hafðu fullan skilning á þessu lögmáli og þú munt vita, án minnsta efa, að með hverri aðgerð sem þú framkvæmir gegn því ertu að vinna gegn sjálfum þér.
Tólf ráð til að tileinka sér gullnu regluna:
- Ég trúi að gullna reglan eigi að vera grundvöllur allra mannlegra samskipta. Þess vegna mun ég aldrei gera öðrum það sem ég vildi ekki að þeir gerðu mér ef ég væri í þeirra sporum.
- Ég ætla að vera heiðarlegur í viðskiptum við aðra jafnt í stórum sem smáum atriðum, ekki einungis vegna þeirrar vonar minnar að ég sé sanngjarn, heldur ekki síður til að tileinka undirmeðvitund minni heiðarleika sem koma mun fram í persónuleika mínum.
- Ég ætla að fyrirgefa þeim sem eru ósanngjarnir við mig, án þess að hugsa um það hvort þeir eigi það skilið. Ég veit að lögmál fyrirgefningarinnar styrkir persónuleika minn og heldur áhrifum sárinda frá undirmeðvitund minni.
- Ég mun ávalt vera örlátur og sanngjarn í samskiptum við aðra, jafnvel þó ég viti að það mun ekki verða eftir því tekið né þegið, vegna þess að ég að nota þetta lögmál til að byggja upp eigin persónuleika og veit að þverskurðurinn af honum munu vera gerðir mínar og dáðir.
- Í hvert skipti sem ég sleppi því að afhjúpa veikleika og mistök annarra, mun mér ganga betur að leiðrétta eigin veikleika.
- Ég ætla ekki að baktala neina manneskju, sama hvað hún á það mikið skilið, því ég vil ekki sá neinum eyðileggjandi hugmyndum í undirmeðvitund mína.
- Ég geri mér grein fyrir mætti huga míns og því sem hefur áhrif á hugsun mína utanfrá, því mun ég ekki sá neinum niðurdrepandi hugmyndum.
- Ég mun yfirstíga algengar mannlegar hvatir s.s. öfund, sjálfselsku, afprýðisemi, illgirni, hatur, svartsýni, efa og hræðslu, þar sem ég trúi að þessar hvatir séu heimsins vandræðamesta uppskera.
- Þegar hugur minn er ekki upptekinn við að vinna að mínu aðal markmiði í lífinu, mun ég sjálfviljugur halda honum við hugsanir um hugrekki, sjálföryggi, og velvilja í garð annarra, sem og trú, trygglindi, ást á sannleika og réttlæti, vegna þess að ég trúi að með því að leggja rækt við þessi atriði muni ég stuðla að vexti góðrar uppskeru.
- Ég veit að skilningur á notkun gullnu reglunnar gagnast hvorki mér né öðrum nema að henni sé komið í framkvæmd.
- Ég skil að með notkun mun gullna reglan þróa persónuleika minn til hugsunar og athafna, þess vegna mun ég gæta þess hvað mun hafa áhrif á þá þróun.
- Skilningur á að langvarandi hamingju öðlast ég einungis með hjálpsemi við aðra, að velvilji er ávalt endurgoldinn þó hann sé ekki beint endurgreiddur, því mun ég gera mitt besta í að verða öðrum að liði þegar þess er óskað og þegar tækifæri gefst til.
"Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig" er lögmálið um gullnu regluna um að gera öðrum það sem að þú vilt að þeir geri þér. Þetta er lögmálið um að svara í sömu mynt. Þú munt fá til baka það sem þú gerir fyrir aðra og reynist þú þeim vel þá munu þeir reynast þér vel.
"Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn" er neikvæða hliðin á þessu sama lögmáli. Sýnir þú öðrum yfirgang og illgirni munt þú uppskera það sama.
Þó þú beitir gullnu reglunni án þess að fá svörun sömu mynt í einhvern tíma, eða jafnvel aldrei frá sumum, þá skalt þú hafa í huga að orðspor þitt er byggt á áliti annarra, en þú byggir sjálfur þinn persónuleika. Þú ættir einnig að koma auga á að án þess að beita gullnu reglunni, mun ræðumaðurinn ekki getað sannfært áheyrendurnar. Gullna reglan gildir einnig um sölumanninn hann verður að selja sjálfum sér vöruna fyrst, áður en hann getur sannfært kaupandann.
Jesú sagði:
Matt 7.12 Allt sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.