8.2.2012 | 21:30
Þú ert Guð í lífsins leit.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 22:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.5.2011 | 23:49
Hvað er líkt með krókódíl?
Allt frá því á unglingsárunum, skömmu eftir að einfaldleiki bernskunnar hvarf og himininn varð pastelblár, hefur þessi spurning um krókódílinn oft komið upp í hugann. Það var Óli Ara félagi minn í næsta húsi, tveimur árum yngri en ég, sem lagði þessa spurningu fyrir mig einn daginn í sumarvinnu við byggingar, þar sem við höfðum þann starfa að naglhreinsa og skafa spýtur sólbjarta daga í hlýrri sunnan golu. Mér datt augnablik í hug, af því ég átti að vera eldri og lífsreyndari, að það hlyti að vanta hluta spurningarinnar til þess að hún gæti talist rökrétt, en Óli Guð svarði fyrir að spurningin væri villandi og svarið ætti að vera einfalt enda gæti bæði spurningin og svarið allt eins verið komið frá heimspekideild háskólans. Þessi spurningin ætti því ekki að vera þvælinn, hvorki fyrir börn né fyrir þá sem vita að tveir plús tveir þurfa ekki að vera fjórir frekar en þeim sýnist. Í mörg ár hefði ég viljað eigna speki svarsins þeim stofnunum samfélagsins sem boða þann sannleika sem á að vera til að auka fólki visku og hvetja það til að leita þess óþekkta með síaukinni sérhæfingu, þar til það veit svo mikið um lítið að það getur talist sérfræðingar fimm háskólagráða. Núna þegar tugir ævinnar eru orðnir fimm er svarið við spurningunni um krókódílinn sífellt að verða skírara enda hafa vísbendingarnar borist að úr ýmsum óvæntum áttum í gegnum tíðina.
Sá maður sem hafði lengst af mest áhrif á mína lífsýn var nafni minn og afi, Magnús bóndi og almúgamaður á sinni tíð. Þegar hann heimsótti mig einn sunnudags eftirmiðdag, háaldraður, um langan veg til að sjá húsið sem ég byggði og fjölskyldan mín var þá ný flutt í gaf hann mér púsl í gátuna um krókódílinn. Lengi vel voru samræður okkar samhengislaus þvæla þennan sunnudags eftirmiðdag, þangað til hann allt í einu bar höndina upp að eyranu og sagði; aaah ég gleymdi að kveikja á heyrnartækinu, ég fór nefnilega í messu í morgunn og slökkti á heyrnartækinu því mér leiðist svo talið í prestunum". Afi minn hafði verið kirkjurækinn maður allt sitt líf enda amma fyrrverandi prestsfrú sem missti eiginmanninn, unga prestinn frá tveim litlum dætrum. Lengst af var amma svo kirkjuorganisti í sinni sókn og hann afi minn, seinni maðurinn, meðhjálpari í sömu kirkju. Ég velti því vöngum yfir því árum saman að hann skildi slökkva á heyrnartækinu til að vera laus við að heyra prestana flytja boðskapinn sem ég hélt að ætti að verða okkur kærari sannleikur eftir því sem á ævina líður.?
Ein er sú kona sem hefur verið til frá því ég man fyrst eftir mér og ég hef getað talað við um mín hjartans mál í gegnum alla tíðina. Það er föðursystir mín sem nú er kominn á níunda tug ævinnar. Föðursystir mín hefur, eins og allir, sína sérstöku lífsreynslu, hún hefur auk þess að missa faðir sinn sem barn, lifað fjóra af nýju sonum auk eiginmanns, sem fóru í blóma lífsins. Fyrir þremur árum síðan missti hún tvo syni sem voru á mínum aldri, með viku millibili. Þessi föðursystir mín ræddi það einu sinni við mig fyrir áratugum síðan, þegar ég var enn á táningsaldri, að bróðir hennar, faðir minn, hefði gott af því að fara í kirkju til að sefa sorgina sem fylgdi þeim missi þegar fimm barna móðir og eiginkona hverfur úr blóma lífsins, en þá var pabbi heitinn bitur út í sinn Guð. Fyrir síðustu jól kom út bókin Sumarlandið eftir Guðmund Kristinsson, bók sem hefur að geima frásagnir miðla þar sem framliðnir lýsa andláti sínu og endurfundum í framlífinu. Flestar frásagnirnar hafa að geyma fagra endurfundi við fjölskyldu og vini í hinu fagra "Sumarlandi". Það þurfti því ekki að koma mér á óvart að föðursystir mín, prestsdóttirin, hafi séð kirkjuna sem hellubjarg á erfiðum tíma. En núna, eftir að hafa hvatt mig til að lesa bókina, talar Dúna frænka um skilningsleysi prestanna á andans málum, hvernig kenning þeirra byrgir sýn á Sumarlandið og flækir það eina sem skiptir máli, kærleikann.
Þá eru ótaldar allar þær upplýsingar sem berast að í gegnum fjölmiðla og gefa púsl í svarið um krókódílinn. Þar á ég ekki við þá fjölmiðla sem oftast eru skilgreindir sem slíkir, heldur óritskoðaða visku sem á sér líf í netheimum en er umsviflaust útilokuð sem samsæriskenningar og bábiljur þar sem menn telja sig fara með vísindalegar staðreyndir. Fyrir stuttu lenti ég inn á spjallþráð þar sem hún óskilgreind Sólrún gaf krókódílnum tóninn og sagði m.a.; "Ég held að skynsemi sé okkur meðfædd og misvel útilátin eins og annað frá náttúrunnar hendi. En það getur alveg verið að það sé hægt að rækta hana úr mannskepnunni með einhverju móti. Íslenski sauðfjár stofninn hefur þótt sérstakur vegna litadýrðar sinnar, grátt mórautt, svart, botnótt, flekkótt og allskonar. Það komu tilskipanir AÐ OFAN að það skyldu allar kindur vera hvítar, ekki væri fínt að vera með mislitt fé. Allir fóru að keppast við að rækta hvítt og settu á allskonar horgemlinga, bara af því að þeir voru hvítir, sem auðvitað fór ekkert vel með stofninn til lengdar og viti menn einn daginn komst í tísku að hafa ullina í sem flestum litum..markaðurinn vildi það.... Afi minn var skynsamur maður og hélt mikið upp á mórauða túnrollu sem hann átti og var svo slungin að koma sér í túnið að honum tókst aldrei að girða fyrir hana. Hún fann alltaf upp mótleik...." "Þórbergur Þórðarson var ekki hrifinn af menntakerfinu á sínum skóladögum og varla hefur það batnað síðan þá, þegar að honum hafði loksins tekist það sem hann hafði heitast þráð heima í Suðursveit að komast yfir vötnin ströng til Reykjavikur til að njóta æðri menntunar í Kennaraskólanum þá var honum ekki um sel þegar að verið var að kenna þau vísindi þar að kettir hefðu fjórar lappir og rófu. Fannst honum víst til lítils vera barist og átti von á einhverjum meira framandi fróðleik. Hann vildi líka meina að skólar hefðu upphaflega aðeins verið ætlaðir yfirstéttar börnum en þegar að sauðsvartur almúginn fór að læða löppinni þar inn milli stafs og hurðar "ÞÁ FÓRU ÞEIR AÐ KENNA LATÍNU " mál sem var í raun útdautt til að sporna við of mikilli menntun almúgans. Þessi aðferðafræði virðist hafa haldist nokkuð vel hingað til."
Svo eru það öll púslin í myndina um krókódílinn sem vinur minn og frændi, hann Helgi, sem átti því láni að fagna að sleppa við staðreyndastagl um fjórar loppur kattarins og eina rófu 14 ára gamall og hafa það gjörvulega framkomu að vera ráðinn á togara. Þó svo að hann hafi búið hinu megin á hnettinum á meðal andfætlinga s.l. þrjá áratugi hefur hafsjór af upplýsingum sem ekki tilheyra hinni hefðbundnu heimsmynd latínusamfélagsins borist frá honum yfir höfin á alheimsnetinu. Mér hefur oft dottið í hug að sú viska og gjörvuleiki sem hefur veitt honum velfarnað í lífinu komi beint frá hjartanu og jafnvel eitthvað frá ömmu hans sem vissi lengra nefið náði. Ég hef stundum haft það á orði við systkini mín að mitt mesta ólán í lífinu séu þau ár sem ég hafði hvorki manndóm né bar gæfu til að hlíða hjartanu og tiltek þá sérstaklega skólaárin. Allan þann tíma fannst mér margt það sem var á borð borðið vera á skjön við meðfædda skinsemina, en lét mig hafa það því þeir sem bæru spekina á borð hlytu að vita betur hvað mér væri fyrir bestu en ég sjálfur. Systkini mín fjögur taka þessum yfirlýsingum elsta bróðir af stólískri ró. Bróðir minn sem er næstur í aldri er sá sem veit hvað ég meina og sýnir skilning þess sem hefur afrekað svipaða skólagöngu. Systur mínar tvær taka þessu með nærgætnum umvöndunum, þó hver á sinn hátt. Báðar hafa þær afrekað sýnar háskólagráðu þó leiðir þeirra að þeim hafi verið ólíkar. Sú eldri varð stúdent um fertugt og kláraði svo háskólanám með hraði og glans, þrátt fyrir lesblindu og alla þá annmarka sem uppeldi Sumarhúsanna fylgdu, en á föður okkar heitin getur hún varla minnst án þess að minnast á Bjart í Sumarhúsum í framhjáhlaupi. Sú yngri glansaði ung að sínum gráðum og finnst mér örla á meiri efa hjá henni um réttmæti þess að kenna skólagöngu minni um allar mínar ófarir. Yngsti bróðirinn átti það til að þræta um eyðileggingarmátt skólagöngunnar og jafnvel efast um að spurningin um krókódílinn ætti rétt á sér, enda sótti hann gráðu sem kennd er við master og verkfræði. Samt fór það svo að sannleikurinn fannst ekki í master og meira en milljón á mánuði, nú er hann Buddha munkur sem ætlar að skilja lífið ásamt því fyrra og því sem á eftir kemur. Ég held að krókódíllinn heiti karma á Buddhisku og upp á síðkastið hef ég séð að hann er farinn að greina krókódílinn.
En hvað með það, fyrrum togarajaxlinn hann Helgi sendi mér viskuna sem lét svarið um hvað sé líkt með krókódíl standa ljóslifandi fyrir mínum hugskotssjónum, sem e-mail í pínulitlum link á youtube. Þó maður velti fyrir sér spurningu lífsins mestan hluta ævinnar þá þarf það ekki að vera svo að svarið sé flókið, miklu frekar að það hafi alltaf verið fyrir framan nefið og að vitneskjan hafi verið meðfædd áður en barnsálin lagði af stað út í hinn stóra heim. Það mætti því ætla að óþarfi væri að eiða heilli ævi, í að komast að því sem lá ljóst fyrir barninu, um það eina sem skiptir máli, kærleikann eins og Dúna frænka segir. En hvernig er svo farið að því að flækja það eina sem skiptir máli í því sem næst heilan mannsaldur?
Ímyndum okkur að skrifuð hafi verið bók þar sem það er útskýrt er fyrir blessaðri barnsálinni í þykku og miklu ritverki andans orða, svipuðu og Biblíunni, hvernig á að læra að hjóla. Þar sem sagt er frá eðli hjólsins, hvernig jafnvægi þess virkar, hvernig á að bera sig að og í hvaða átt er hægt að fara á hjólinu. Ímyndum okkur að fólk fái þessa bók áður en það prufar að hjólað og það á að þekkja öll atriðin um það hvernig á að fara að því að hjóla þegar þar að kemur, en fyrst verði það að leggja þetta allt á minnið og ná að svara öllum spurningum með tilteknum árangri á 40 mínútna prófi áður en það fær að prufa hjólið. Gerum jafnframt ráð fyrir að þeir sem skrifuðu þykku kennslubókina og semja prófið um það hvernig á að hjóla, vilja helst ekki að við hjólum því þá gæti verið að við hjóluðum í aðra átt en þau, en vegna þess að við sjáum vísbendingar um hversu hjól eru sniðug allt í kringum okkur þá ákváðu þau að skrifa hjólreyða reglugerðarbókina svo að það væru þau sem settu þó allavega reglurnar. Með því að skrifa reglurnar um það hvernig fólk lærir að hjóla verða þau við stjórn allra okkar hjólreiðatúra, í hvaða átt við förum, hversu hratt osfv... Þannig verða allar upplýsingar um það hvernig skuli hjóla meira og minna blandaðar hagsmunum þeirra sem vildi ekki að við lærðum að hjóla, þar sem við verðum að fylgja öllum reglunum í bókinni til enda, við fengum náðsamlegast leifi til að læra að hjóla og við verðum að óska eftir endurnýjuðu leyfi í hvert skipti sem ætlum að fara út að hjóla. Þú kannt að hafa allskonar athugasemdir við þessa reglugerða bók en þú ert ekki marktækur vegna þess að þú hefur ekki löggilt leyfi til hjólreiða.
Ef tekið er mið af fagnaðarerindi Krists þá þurfti hann hvorki löggilt leifi eða bók til að hjóla, hann einfaldlega hjólaði. Í stað þess að skrifa þykka leiðbeiningabók um sínar hjólreyðar reyndi hann að fá fólk til að hjóla, en þeir sem skrifuðu reglugerðabókina um hjólreyðar hafa sett inn allskonar takmarkanir og útúrdúra sem gagnast einungis hagsmunum höfundanna. Af hverju tóku þau sem vilja stjórna kenningu Krists og brengluðu henni? Það var vegna þess að kenning hans var svo hnitmiðuð og óhrekjanleg svo þau urðu að taka fagnaðarerindið og flækja það með því að setja í bók þar sem bætt var inn mótsögnum til að villa um fyrir saklausum lesendanum. Flestir kannast við að í ritum nýja-testamentisins má finna "elskaðu óvini þína, dæmdu ekki, sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum" osfv.. Svo eru þar ýmsar mótsagnir sem rugla lesendur í ríminu og hafa verið notaðar til að ala krókódílinn. "Sá sem ekki er með mér er á móti mér" hvernig á þetta samhljóm með "elskaðu óvini þína"? Myndir þú í nafni kærleikans senda barnið þitt í fyrsta hjólreiðaferðina niður brekku þar sem það næði nægilegri ferð til að halda jafnvægi með þá leiðsögn í farteskinu að taka í handbremsuna fyrir framhjólið þegar það vildi stoppa? "Engin kemur til föðurins nema í gegnum mig" hentar höfundinum sérdeilis vel. Það eru víða setningar Nýja Testamentinu sem er erfitt að ímynda sér að Kristur hafi sagt, því þær eru í mótsögn við boðskapinn sjálfan, það sama á við þegar kemur að túlkunum Postulasögunnar og bréfa Páls. Gamla testamentið, sem er mikil lesning svo sígild að það má auðveldlega finna henni stað í nútímanum sem kvikmyndahandrit af Rambó skrifuðu fyrir eigendur og kostara Al Qaeda.
Þannig má endurskrifa fagnaðarboðskap með því að lauma inn setningum sem eru í mótsögn við einfaldan boðskap í þeim tilgangi að lesandinn þurfi heila æfi til að ná merkingunni sem lá ljós fyrir áður en hann lærði að lesa. Þess vegna er allt gert svo við trúum að við getum ekki hjólað nema að við hjólum með hjálp hjólreyðareglugerðarbókarinnar sem skrifuð er af þeim sem vilja ekki að við hjólum og höldum jafnvægi án hjálpardekkja. Eftir að íbúar þessa heims sáu í gegnum ritsnilld hinna ýmsu krossfara fyrri tíma kom upplýsingin til skjalanna, hin mikla vísindalega menntun sem upphaflega var kennd á latínu. Eftir áralangt latínustagl skildi ekki nokkur lifandi sála þann sem fór með sannleikann, það var þá sem þau fundu upp sérfræðinginn sem veit svo mikið um lítið að engin er marktækur nema vera sérfræðingur með helst fimm háskólagráður.
Það er alltaf gott að fá staðfestingu á alheimsnetinu og youtube að spurningunni um krókódílinn hefur sama svarið og þegar við Óli stóðum hlýrri sunnangolunni undir bláum himninum skafandi spýtur, minnugir kærleika bernskunnar þar sem tveir plús tveir þurftu ekki að vera fjórir frekar en okkur sýndist, vitandi upp á hár að það sem er líkt með krókódíl, er að hann getur hvorki hjólað.
Lífstíll | Breytt 21.5.2011 kl. 23:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2011 | 07:41
Draumheimar.
Heimurinn sem við upplifum þegar við eru vakandi og heimurinn sem við upplifum í draumi svefns eru mög svipaðir, báðir eru upplifun okkar innra sjálfs. Ef við viljum halda því fram að draumaheimurinn sé óraunverulegur þá verðum við jafnframt að halda því fram að heimurinn í vöku sé óraunverulegur, og ef við viljum halda því fram að vökuheimurinn sé sá raunveruleg, þá verðum við jafnframt að halda því fram að draumaheimurinn sé raunverulegur.
Einu munurinn á þessum tveimur tilverustigum er að draumurinn verðir til vegna næmni óþekktra stöðva hugans á meðan vökuheimurinn verður til í okkar stóra heildar huga. Draumheimurinn varir einungis jafnlengi og draumurinn, að sama skapi endist vökuheimurinn einungis jafnlengi og vökuástandið varir. Þegar við deyjum hættir vökuheimurinn að vera næmur og heimurinn sem við höfum upplifað hverfur. Heimurinn sem önnur skynjun mun samt halda áfram að vera til, en okkar persónulegi heimur mun hverfa eins óafturkallanlega og draumur í svefni næturinnar.
Transform your life / Kelsang-bhudda bls.247
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.3.2011 | 22:26
Lífið er eins og bolli af kaffi.
Hópur fyrrum nemenda, sem hafði notið mikils starfsframa, voru komin saman til að heimsækja sinn gamla háskólakennara. Samræðurnar snérust fljótlega upp í kvartanir vegna vandamála og álags sem áríðandi lífi þeirra og starfi útheimti.
Eftir að hafa boðið gestum sínum kaffi, fór prófessorinn í eldhúsið og kom til baka með stóra könnu fulla af kaffi og samsafn bolla; úr postulíni, plast, gleri, kristal; suma hefðbundna, suma rándýra, suma stórkostlega. Hann bauð gestum sínu að gjöra svo vel og bera sig eftir kaffinu.
Eftir að allir höfðu orðið sér út um kaffi, sagði prófessorinn; Þið tókuð kannski ekki eftir því að fallegu dýru bollarnir gengu út en þeir venjulegu og ódýru voru látnir vera. Það er eðlilegt að þið sækist aðeins eftir því besta fyrir ykkur sjálf, en í því liggur samt sem áður rót vandmála ykkar og álags.
Verið því viss um að bollinn bætir ekki gæði kaffisins. Í flestum tilfellum gerir bollinn kaffið aðeins dýrara og í sumum tilfellum felur hann það sem við drekkum. Það sem öll ykkar langaði í upphaflega var gott kaffi, en ekki flottur bolli.
Þið ómeðvitað sóttust eftir besta bollanum...... Og þar á eftir fóruð þið að gefa bolla hvers annars auga til að sjá hver hefði náð í þann flottasta. Íhugið þetta....... Lífið er kaffið; starfið, peningarnir og þjóðfélagsstaðan eru bollarnir. Þeir eru bara verkfæri til að innihalda og gerð bollans sem við höfum skilgreinir ekki né breytir gæðum innihaldsins.
Stundum, með því að einblína aðeins á bollann, gleymum við að njóta kaffisins. Njótum kaffisins ekki bollanna! Ánægðasta fólkið hefur ekki það besta af öllu. Það bara gerir það besta úr öllu. Lifir í einfaldleika. Talar vinsamlega. Er umhyggjusamt og á nóg af kærleika.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.2.2011 | 08:52
Sannir draumar.
Heimurinn sem við upplifum í vöku og draumi, þ.m.t. svefni eru jafn sannur, í báðum tilfellum upplifum við líf okkar. Munurinn á þessum tveimur tilverustigum er að upplifanirnar verða til vegna næmni mismunandi stöðva hugans, okkar innra sjálfs. Draumaheimurinn varir einungis jafnlengi og draumurinn á meðan vökuheimurinn á sér síendurtekið framhald í vökuástandi. Vökuheimurinn missir samt sem áður næmi sitt, á líkan hátt og draumaheimurinn, þegar við deyjum þá verður hann jafn óafturkallanlegur og draumar næturinnar.
Tilverustig draums og vöku ættu því að vera viðurkennd sem jafn sönn. Það sem við upplifum í vöku er í raun það sem hugur okkar hefur séð fyrir hvort sem það er í eigin dagdraumum, svefni, eða það sem oft er líklegast, þeirri innrætingu sem huga okkar er gefin af umhverfinu, t.d. uppeldi, skóla og fjölmiðlum. Það er því mikilvægt að gera sér grein fyrir að innræting umhverfisins gengur að miklu leiti út á að hafa áhyggjur af framtíðinni, sektarkennd yfir fortíðinni en gleyma nútíðinni. Draumarnir gefa okkur aftur færi á að sjá okkur sjálf eins og við erum núna og leitast við að upplifa það í hinum efnislega vökuheimi.
Okkur hættir til að trúa því að utanaðkomandi innræting sé hinn raunverulegi heimur og heimurinn sé því utan okkar sjálfra. Sem börn höfum við upplifað að draumurinn er raunveruleikinn vegna þess að hann býr innra með okkur sjálfum. Barnið hefur verið á tunglinu þegar það hefur dreymt það og veit hvernig þar er í hjarta sínu, það er ekki fyrr en seinna að það fer að trúa á tálsýnina sem er há himninum og efast um eigin upplifun. Barnið trúir t.d. ekki á karlinn í tunglinu vegna þess að því hefur verð innrætt að þar sé hann, barnið veit að karlinn býr í tunglinu þar til því er sagt að vera ekki að þessu bulli, þannig er ímyndunarafl draumanna á að engu gert og það sem á eftir kemur er kallað innræting til upplýsingar.
Draumurinn er því sá hluti sannleikans sem við þurfum mest á að halda til að þekkja okkur sjálf og til að upplifa okkur sem heilbrigðar manneskjur í vöku þessa heims. Tálsýnin er einungis utan okkar sjálfs í vökuheiminum þegar við trúum ekki á eigin drauma. Draumurinn er því svipaður ást við fyrstu sín, hjartað hefur gert sér mynd af því hvernig hún lítur út og þegar manneskjan birtist veistu að þetta er hún, það er ekki fyrr en seinna sem það kemur í ljós hvort er um tálsýn að ræða. Mynd hjartans, sú mynd sem þú hefur búið til innra með þér er eftir sem áður jafn sönn.
Jesú sagði; Lukas. 17.20-21. "Guðs ríki kemur ekki þannig, að á því beri. Ekki munu menn segja: Sjá, þar er það, eða hér er það, því Guðs ríki er innra með yður."
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 08:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.2.2011 | 08:15
Leyndardómur alheimsins.
Þegar þú stendur við tákn óendanleikans. Mun allt sem þú vilt lúta lögmáli alheimsins, sækistu eftir breytingum þá mun þér verða gefinn lykilinn. Og með þessari vitneskju kemur ábyrgðin á því að útdeila henni, þér verður sýndur vegurinn.
Þetta er mjög einfalt. Í alheiminum er regla þar sem hreyfing himintunglanna og náttúrunnar fara saman við mannshugann. Huga sem er í sínu rétta ástandi þegar hann er í samhljómi við alheiminn, og svoleiðis hugur er tímalaus.
Líf þitt er tjáning huga þíns. Þú ert skapari þíns alheims, sem maður ertu frjáls til að vera í hverju því hugarástandi sem þú óskar í gegnum hugsanir þínar og orð. Það er mikið vald í því fólgið og hvort því fylgir blessun eða bölvun er allt undir þér komið.
Gæði lífs þíns er afsprengi gæða hugsana þinna, hugleiddu það. Hugsanir eru undanfari aðgerða, aðgættu því hvað þú hugsar. Taktu eftir sjálfsvorkunnunni, öfundinni, græðginni, hræðslunni og öllum þeim viðhorfum sem valda þér sársauka og óþægindum.
Gerðu þér grein fyrir að það er eitt sem þú hefur algjört sjálfsforæði yfir, það er viðmót þitt. Taktu eftir hvaða áhrif það hefur á þá sem í kringum þig eru. Þá muntu sjá að sérhvert líf er tengt öllu lífi og viðmót þitt og orð valda viðbrögðunum eins og þegar steini er kastað í lygnan vatnsflöt.
Ef hugsanir þínar eru í lagi munu orð þín streyma beint frá hjartanu og skapa gárur kærleikans. Ef þú í raun villt breyta lífi þínu vinur, verðurðu að breyta hugsunum þínum. Ástæðan er mikilvægasta verkfærið, hún býr til andrúmsloft skilnings sem leiðir til væntumþykju sem er kærleikur. Veldu því orð þín af væntumþykju og sæktu fram með þeim.
Lífstíll | Breytt 19.2.2011 kl. 13:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.1.2011 | 07:47
Efnahagsleg velgengni.
Til að byrja með geta einu vísbendingarnar fyrir fjárhagslegri framför staðfests hugarfarslega. Ef þú getur aðeins látið það nægja, án þess að ætlast til veraldlegra sannanna, mun árangurinn ekki láta á sér standa.
Þær aðstæður sem sem þarf að skapa svo úr verði augljós efnahagslegur árangur er tilfinningin fyrir því að svo verði, þannig hefur tifinningin búið til farveg fyrir aðstæðurnar. Þessar tilfinningalegu aðstæður gerir þú raunverulegar með hugarfari þínu, jafnvel þó engin önnur sönnunargögn séu merkjanleg.
Ef þú ert tilbúin til að láta hugarfar þitt og tilfinningalegt ástand vera til staðfestingar um velgengni þína, mun staðfestingin þá þegar fá framgang með betri líðan og sá dagur koma að sönnunargögnin verði sýnileg. En ef þú leitar sönnunargagna of fljótt og finnur ekki muntu missa móðinn.
Þörfin til að sjá strax árangur erfiðis er stærsta hindrunin fyrir flesta. Þegar óþolinmæðin rekur þig til að taka stöðuna of snemma, færistu frá takmarkinu sem þú stefnir að.
Engin löngun er vegna annarra ástæðna en fyrir trú þína á betri líðan við að uppfylla hana. Hvort sem það eru hlutir, haugur af peningum, góð sambönd eða líkamleg hreysti. Allar langanir stafa af þörfinni fyrir að líða betur.
Þegar þú hefur uppgötvað aflið við að líða betur fyrst, geturðu beint huganum frá vandamálunum s.s. streði, áreiti og öllu því sem þú villt ekki, beint huganum þess í stað að einfaldleika og dýpt eigin öndunar - þannig fundið leið til að leyfa huganum að dveljast annarstaðar en við óþolinmæði eigin hugsana.
Sannanir alls sem þú þráir eru að grafa sér farveginn til þín og eina hindrunin sem heldur aftur af þeim er framboð þitt af hugsunum sem valda tilfinningunni um að svo sé ekki. Þegar þú uppgötvar einfaldleika listarinnar við að leyfa ekki ónauðsynlega viðstöðu eigin hugsana, hleypirðu að öllu því sem þú hefur beðið um, því allt verður fyrst til í huganum og staðfestist með tilfinningunni.
Endursagt úr; Getting into the Vortex-The teachings of Abraham.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 08:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.1.2011 | 08:52
Fjárhagsleg velgengni.
Fjárhagsleg velgengni kemur ekki inn í líf manna vegna mikillar vinnu, heppni né greiðasemi - fjárhagslegar velgengni verður einfaldlega til þegar alheimurinn bregst við hugsun og tilfinningu um gnægtir.
Þeir eru margir sem nálgast lífið frá þeirri röngu forsendu að ef þeir vinni hörðum höndum, striti nógu lengi og fórna nógu miklu þá verði þeir verðlaunaðir með fjárhagslegri velgengni. Og þegar þeir átta sig á að strit hefur leitt til afneitunar á lífsins gæðum en ekki til gnægta eiga þeir til að eigna það skorti á heppni eða greiðavikni annarra, sem leiðir þá svo enn lengra af braut.
En það er ekki til nein heppni eða greiðvikni þegar gnægtir eru annarsvegar. Það er aðeins spurningin um að leyfa sér eða veita viðnám, veita eða hafna, gefa eða afþakka þær gnægtir sem þú átt skildar.
Þegar þú líður skort og kennir um aðstæðum sem eru utan þíns áhrifasviðs, ásetnings eða valds, áttu aðeins þann kost að leita greiðvikni hjá þeim sem fer með það vald. En þar sem þetta vald er engum gefið sem stendur utan við þig, munt þú ekki finna það hjá öðrum en þér í leit þinni að jákvæðri niðurstöðu. Aðeins með því að þjálfa hugsun þína í átt til jákvæðra væntinga, sjálfvirðingar og vellíðunar, þá samræmirðu hugsanir þínu sanna valdi. Hugmyndir og möguleikar munu streyma til þín. Áhugaverð og spennandi samskipti mun umleika þig. Fólk með áhrif og væntingar mun dragast að þér eins og að segli. Tækifærin munu hljóta staðfestingu og verða óþrjótandi. Þá muntu gera þá skemmtilegu uppgötvun að allt var alltaf innan seilingar, en aðeins þitt eigið viðnám í viðmóti gerði það að verkum að þú varst ekki fær um að njóta þess......og svo kom það allt í einu - ekki vegna þess að þú stritaðir heldur vegna þess að þú leifðir þér vellíðan.
Endursagt úr; Getting into the Vortex-The teachings of Abraham.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 08:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.12.2010 | 08:11
Í algleymi.
Inn úr þínu algleymi kemur það sem veitir lífsfyllingu og yndi. Þaðan finnst þér andi þinn vaxa ferskur og keppa eftir meiru. Með hverri uppgötvun og hverri nýrri stöðu vex tilfinningin fyrir því að komast lengra í nýjum ferskleika.
Þegar þú ert utan sköpunar algleymis þíns, með athyglina á það sem þig vantar, jafngildir það því að biðja um að svo verði áfram. Þegar þú veist hvað þú vilt ekki, ættirðu að vita hvað þú vilt, en þú hefur ekki aðgang, því þú ert utan algleymis sköpunar þinnar. Með öðrum orðum þú getur ekki komist í streymi góðra efnisþátta þegar hugur þinn er upptekinn við annað, þú einfaldlega hefur ekki tvöfalt val á sama tíma. En þegar þú ert í þínu algleymi, eru allar tilfinningar góðar, og þar af leiðandi velurðu það sem þú vilt. Þannig velur þú af því besta sem lífið hefur að bjóða.
Auðvitað er ávinningur að því að vita muninn á hvað þú vilt og vilt ekki, en það er ekki nauðsynlegt að finna óþægindi af því sem þú vilt ekki til að vaxa í þá átt sem þú vilt. Þú getur einungis horft til þess sem þú vilt og notið takmarkalsuss framboðs góðra kosta við mótun þíns veruleika.
Jafnvel á meðan þú ert að velja út frá vellíðan algleymisins af þeim kostum sem í boði eru, þá ertu um leið að skapa nýja möguleika, nýjar hugmyndir og nýja vaxtarmöguleika. Þú ert ekki aðeins að skapa nýja efnisþætti til upplýsingar inn í þína lífsreynslu, þú ert um leið að búa til áframhaldandi nýja framtíðarsýn til að njóta fleiri uppgötvana, fleiri sambanda, meiri efnistaka, fleiri samsetninga, meiri ævintýra, meiri vitneskju, fleiri óska, meira þakklætis..............
Það þarf alltaf að koma til eitthvað nýtt til að endurnýjast ............ uppspretta sem býður kærleika og gleði sem kallar á þig til óendanlegs vaxtar fyrir fleiri.
Endursagt úr; Getting into the Vortex-The teachings of Abraham.
Lífstíll | Breytt 14.1.2011 kl. 17:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.12.2010 | 07:50
Tækifæri lífsins.
Á þessari stundu, í tíma og rúmi, ert þú nákvæmlega þar sem þú átt að vera. Lífskrafturinn innra með þér skapar líf þitt með þeirri eftirvæntingu sem hann skinjar í gegnum veraldlega upplifun þína og notar svo samkvæmt mikilvægi hennar.
Þegar upp koma aðstæður þar sem skýr ný spurning fæðist innra með þér, þá liggur leiðin inn í nýjan veruleika. Jafnvel þó svo svarið við spurningunni virðist út í hött, ertu samt sem áður komin vel á veg á leið þinni til persónulegs vaxtar.
Meir að segja þegar þú ert á kafi í vandamálum, jafnvel í miðri kreppu, geturðu vaxið og dafnað á þinn hátt. Og jafnvel þó lausnin við vandamálunum virðist ekki vera á þínu valdi, þá er það ekki svo.
Hvenær sem athygli þín beinist að erfiðu vali eða vandamáli varðandi líf þitt, fylgir samsvarandi lausn.
Frá sjónarhorni andans er þetta ekki öðruvísi en þegar þú tekur ákvörðun um að beita þér líkamlega. Þú skilur fullkomlega ferli þeirra orsaka og afleiðinga, sem urðu til þess að þú ert komin á þennan stað á þessari stundu. Til að komast hingað í lífinu sem þú ert nú, komstu með hugmyndum þínum og gerðum. Einnig með samvinnu við samferðamenn, með því að gera þá að meðhöfundum þeirra svara sem þú leitaðir, þannig varst þú jafnframt hvati fyrir þá til vaxtar.
Eins og lífið færir stöðugt nýjar spurningar, þá færir það einnig ný svör, sem verða svo til frekari framfara. Allt sem er, hefur hag af vilja þínum til að lifa lífinu með kostum þess og göllum, spurningum og svörum.
Vegna þess hve lífskrafturinn innra með þér er meðvitaður um vissunni fyrir því að með spurningu fylgir svar, þá mun hver hluti veraldlegrar leitar þinnar vera þegin með þökkum og undirvitund þín færa þér svar í samræmi við þá leit.
Í gegnum lífið ættirðu umfram allt öðlast þann andlega þroska, að vandamál hættir að vera vandamál og verður það sem það í raun er - tækifæri lífsins.
Endursagt úr; Getting into the Vortex-The teachings of Abraham.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2010 | 09:12
Hamingja er val.
Eftir tveggja áratuga íhugun hefur Abraham komist að þeirri niðurstöðu að þrjú atriði eru mikilvægust til að öðlast hamingjuna;
1. Hugsaðu góðar hugsanir.
2. Drekktu meira vatn.
3. Andaða djúpt.
www.abraham-hicks.com
Lífstíll | Breytt 16.1.2011 kl. 08:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2010 | 07:46
Skuldaniðurfærsla.
Dæmisaga Jesú í Lúkasarguðspjalli á fullt erindi á öllum tímum. En þar segir hann við lærisveina sína;
"Maður nokkur ríkur hafði ráðsmann, og var sá sakaður við hann um það, að hann sóaði eigum hans. Hann kallaði hann fyrir sig og sagði við hann; Hvað er þetta, er ég heyri um þig? Gjör reikningsskil ráðsmennsku þinnar, því þú getur ekki verið ráðsmaður lengur. Ráðsmaðurinn sagði þá við sjálfan sig; Hvað á ég að gjöra, víst húsbóndi minn sviptir mig ráðsmennskunni? Ekki orka ég að grafa og skömm þykir mér að betla. Nú sé ég hvað ég gjöri, til þess að menn taki við mér í hús sín, þegar ég verð sviptur ráðsmennskunni.
Hann kallaði nú á skuldunauta húsbónda síns, hvern og einn. Við þann fyrsta sagði hann; Hve mikið skuldar þú húsbónda mínum? Hann svaraði: Hundrað kvartil viðsmjörs. Hann mælti þá við hann: Tak skuldabréf þitt, set þig niður og skrifa sem skjótast fimmtíu. Síðan sagði hann við annan: En hvað skuldar þú? Hann svaraði: Hundrað tunnur hveitis. Og hann sagði honum: Tak þú skuldabréf þitt og skrifa áttatíu.
Og húsbóndinn hrósaði rangláta ráðsmanninum fyrir að hafa breytt kænlega. Því börn þessa heims eru kænni í viðskiptum við sína kynslóð en börn ljóssins.
Og ég segi yður: Aflið yður vina með hinum rangláta Mammon, svo þeir taki við yður í eilífar tjaldbúðir, þegar honum sleppir.
Lífstíll | Breytt 19.12.2010 kl. 08:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.10.2010 | 07:36
Boðberi ljóssins.
Sérhver boðberi ljóssins hefur einhvern tíma verið hræddur við að láta ljós sitt skína.
Sérhver boðberi ljóssins hefur einhvern tíma logið eða svikið.
Sérhver boðberi ljóssins hefur eignað sér eitthvað sem var ekki hans.
Sérhver boðberi ljóssins hefur vorkennt sér af léttvægum ástæðum.
Sérhver boðberi ljóssins hefur stundum gert sér grein fyrir að hann var ekki boðberi ljóssins.
Sérhverjum boðbera ljóssins hefur mistekist í sinni andlegu viðleitni.
Sérhver boðberi ljóssins hefur sagt já þegar hann vild hafa sagt nei.
Sérhver boðberi ljóssins hefur sært einhvern sem hann elskar.
Það er vegna alls þessa sem hann er boðberi ljóssins, vegna þess að hann hefur gengið í gegnum allt þetta og hefur ekki ennþá misst sjónar á því að verða betri en hann er. -Paulo Coelho.
Lífstíll | Breytt 6.11.2010 kl. 14:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.9.2010 | 07:47
Lífið er ferðalag.
Lífið er eins og ferð í skemmtigarð og þegar við ákveðum að fara um hann finnst okkur hann vera raunverulegur, vegna þess hve máttugur hugur okkar er. Og ferðin er upp og niður, hring eftir hring, með spennandi og hrollvekjandi uppákomum þar sem allt er litað skærum litum, og með háværum áherslum, og það er svo gaman - um stund.
Sumir, eftir að hafa verið á ferð um langa hríð, spurðu eftir stund er þetta raunveruleikinn eða er þetta virkilega bara ferðalag? Sumir sem þekkja þetta ferðalag koma til baka til að segja okkur; "Hey, hérna þarft þú ekkert að óttast aldrei, eða vera hræddur, vegna þess að þetta er bara ferð" -og við drepum þetta fólk.
"Hann verður að halda kjafti! Ég hef fjárfest í þessari ferð...sérðu ekki hvað ég ég markaður áhyggjum...sjáðu hvað ég hef lagt á mig fyrir bankainnistæðurnar mínar...fyrir fjölskylduna....þetta verður að vera raunveruleikinn".
En þetta er nú samt sem áður bara ferðalag.
En við drepum alltaf góðu gæjana sem reyna að segja okkur það, og leifum djöflunum að ganga af göflunum. En það skiptir ekki máli, þetta er bara ferðlag og við getum breytt um stefnu hvenær sem við viljum.
Allt sem við þurfum er að velja.
Ekkert erfiði, engin vinna, ekkert starf, engin sparnaður né peningar - bara að velja á milli ótta og kærleika.
Með augum óttans viltu setja stærri lás fyrir útidyrnar, kaupa byssur og loka þig af - augu kærleikans sjá okkur aftur á móti öll sem eitt.
Það sem við getum gert til að breyta heiminum strax, er að taka alla peninga sem við samþykkjum að eitt sé í vopn og varnir ár hvert. Í staðinn notað þá í að fæða, klæða og uppfræða þá sem eru þurfandi í heiminum, sem væri samt mörgum sinnum meira en þyrfti og ekki ein manneskja yrði útundan, síðan kæmumst við áfram ...saman...bæði hið innra og ytra...að eilífu...í friði.
- Bill Hicks 1961 - 1994 (grínisti og uppistandari var vanur að ljúka þáttum sínum með þessari orðum).
Lífstíll | Breytt 27.9.2010 kl. 07:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.7.2010 | 08:04
Að trúa á ljósið.
Áreiti umhverfisins s.s. frétta, auglýsinga og alls þess sem tilheyrir daglegu lífi er komið á það stig að með síbiljunni hindrar það heila hugsun, það að skinjun hjartans verði ofaná. Þegar áreiti heimsins er orðið það mikið að harði diskurinn er orðinn yfirfullur af froðusnakki heimsins og vinnsluminnið ræður ekki lengur við að muna nafn náungans né hvar bíllyklarnir eru, er ráð að staldra við, hlusta á vindinn, fylgjast með skýjunum á leið þeirra um himininn og bara vera. Í það minnsta slökkva á sjónvarpinu sem flytur okkur að meðaltali 12 hörmungafréttir í hverjum fréttatíma. Þess á milli auglýsingar og afþreyingu um það sem við eigum að girnast.
Fæstum okkar kemur til hugar að hugsanir okkur séu skipulega eyðilagðar af öflum sem stýra samfélaginu. Þegar dælt er yfir okkur upplýsingum um hörmungar heimsins, dót, væntingar og drauma sem eru í raun ekki okkar. Hvað þá að þessi öfl eigi uppruna sinn í öðru en því samfélagi sem hefur verið skapað með okkar vilja. Að halda öðru fram væri svipað og að halda því fram að ljóti karlinn byggi á tunglinu. Samt er það svo að þessi öfl ráða mun meira um líf okkar í gegnum fjölmiðla en við viljum gera okkur grein fyrir.
Sem dæmi má benda á dagana 6. til 9. október haustið 2008. Þessa daga voru fluttar fréttir af efnahagshruni og síðan hafa verið fluttar stanslausar fréttir af hörmulegum afleiðingum þess. Minna hefur farið fyrir fréttum af náttúrunnar gæðum sem hafa verið einstök hvað veðurfar og árferði varðar allan þennan tíma og þeim möguleikum sem hagstætt árferði hefur gefið okkur til að búa við allsnægtir. Ef frá eru talin eldgos vetrarins höfum við lifað góðæri. Eldgosin reyndust þó langþráður léttir frá þeim hörmunga fréttaflutningi sem til varð við efnahagshrunið.
Þessi skipulega eiðilegging á frjálsri hugsun í gegnum stöðugan áróður fjölmiðla og annarrar innrætingar, aftengir meðfætt skapandi innsæi hjartans. Áreitið hefur leitt til þess að við erum tilbúin til að gefa vanhæfum stjórnvöldum sífellt meiri tök á lífi okkar. Vegna þess að okkur hefur verið innrætt að við búum ekki yfir nægilegri færni til að ráða við eigið líf í flóknu kerfi hinna hættulegu kringumstæðna, þrátt fyrir að slíkt hafi ekki verið til sem vandamál þegar við vorum börn.
Barnsálin trúir í innsæi hjartans og kemmst með því þangað sem hún vill. Barnið trúir t.d. ekki á karlinn í tunglinu vegna þess að því hefur verð innrætt að þar sé hann, barnið veit að karlinn býr í tunglinu þar til því er sagt að vera ekki að þessu bulli, þannig er ímyndunarafl draumanna á svipstundu að engu gert og það sem á eftir kemur er kallað að vera upplýstur.
Síðar á ævinni renna þau vonbrigði upp fyrir mörgu barninu að það fylgdi ekki hjartanu á mikilvægustu augablikum lífsins. Þess í stað var dýrmætum tíma eitt í að fylla höfuðið af gagnslausum upplýsingum þar til að ekki var orðið pláss fyrir heila hugsun. Hugurinn hafði verið fylltur hugsunum efans sem tilheyra ekki draumi nokkurs manns.
Vonbrigði og efasemdir eru til ama í lífinu. Efagjarnt fólk er oft vondapurt. Þegar efi sækir að þér er líf þitt óráðið. Þú kemst ekkert. Efinn hindrar aðgerðir og verður til þess að teknar eru engar eða jafnvel rangar ákvarðanir. "Ja hvað skal gera" segir þú; og ekkert skeður. Segðu já og hafðu jákvætt viðhorf til lífsins.
Heimurinn býður upp á marga góða hluti, og þá getum við tileinkað okkur. Við höfum styrk til að gera það rétta, ef við viljum þiggja hann. Þegar kraftaverkin verða í lífi okkar, lútum við þeim sem staðfestingu á mætti Guðs, orku alheimsins, þeirra ar orku sem við erum öll hluti af og getum notið ef við aftengjumst ekki hjartanu. Málum okkur út í horn með því sem kallast á menntuðu máli "sérhæfing" og á lögfæði máli "óskyld mál".
"Trúin flytur fjöll". Í málshættinum felst, að trúin getur breytt öllu á sviði mannlegra samskipta. Ef þú treystir Guði, kennir hann þér að "flytja fjöll". Ef þú ert nógu auðmjúkur til að vita, að þú getur litlu breytt með eigin "sérhæfingu" nema með þjónustu við náungann, ef þú ert nógu trúaður til þess að biðja Guð að gefa þér þann kjark, sem þú þarft til að sjá samhengi "óskyldra mála", og ert nægilega þakklátur fyrir náð hans þér til handa, getur þú "flutt fjöll". Þá mun nærvera þín bæta allar kringumstæður.
Þér hefur verið trúað fyrir lífinu. Íhugaðu hvað það þýðir. Í lífinu gerast kraftaverk ef þú trúir og væntir góðs. Gættu þess að flækjast ekki í aukaatriðunum og verða eins og maðurinn sem trúði því að; tunglið skipti miklu meira máli en sólin því það lýsti á nóttunni, sólin skini á daginn þegar það er bjart hvort sem er.
Jesú sagði; Lukas 22-23.6. Augað er lampi líkamans. Sé auga þitt heilt, mun allur líkami þinn bjartur. En sé auga þitt spillt, verður allur líkami þinn dimmur. Ef nú ljósið í þér er myrkur, hvílíkt verður þá myrkrið.
Lífstíll | Breytt 27.7.2010 kl. 07:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.7.2010 | 07:15
Án takmarkana.
Við erum fædd sem lítil kríli hinna óendanlegu möguleika. Við elskuðum og vorum elskuð án skilyrða. Hugtakið skortur var ekki til. Þegar þú stækkaðir byrjaðirðu að spyrja heiminn í kringum þig. En í skólanum var þér kennt að endurtaka upplýsingar í stað þess að hugsa eigin hugsanir. Skoðanir þínar vor gerðar að aðhlátursefni jafninga þegar þú efaðist um fræðin. Þú leifðir hópsálinni að hafa áhrif á gerðir þínar og ákvarðanir. Þú gerðir það sem þér var sagt af ótta við afleiðingarnar af því að gera það ekki.
Líkar þér að stjórnast af ótta? þér voru gefnir dómar svo þú lærðir að gera það sama. Hver og einn þarf að koma auga á hvað hann dæmir í fari annarra. Vera meðvitaður um þá dóma og breyta þeim hluta sjálfsins sem dæmir. Hugmyndir þínar hafa mótast í gegnum áhorf á sjónvarp (sem er talin nauðsynleg innræting í almannaþágu). Við erum síðan verðlaunuð með afþreyingu svo við rannsökum ekki veruleikan í kringum okkur. Meðvitað haldið fávísum með þeirri vissu að við óttumst hið óþekkta.
Við viljum vera upplýst um viðburði heimsins en erum fóðruð á áróðri. Þér var gefin von um breytingar með lýðræðislegum kosningum. En sú von hrundi þegar þú uppgötvaðir að öllum flokkum er stýrt af sömu hendi. Þér var kennt af trúarbrögðum að tilbiðja guði utan sjálfs þín, án þess að gera þér grein fyrir að þú hefur alltaf tilheyrt óendanlegri vitund alheimsins.
Þú hófst lífsgæðakapphlaupið vegna þess að annar möguleiki var akki augljós. Við vorum þjálfuð til að verða neytendur með stöðugu auglýsingaáreiti um merkjavörur stórfyrirtækjanna. Efnafræðiformúlur eru á matseðli þínum til að gera þig mótækilegri. Þú varðst óánægður með stöðu þína en var sagt "að lifa ekki um efni fram".
Okkur var kennt að gera lítið úr öðrum vegna þess að þeir eru öðruvísi. Sem gerir okkur auðsærð þegar sérstaðan sem við teljum einkenna okkur verður fyrir áreiti að sama toga. Þá er sama neikvæða hegðunin endurtekin vegna þess að við kunnum ekki annað en að láta kringumstæðurnar stjórna geðinu. Ef þú værir aðeins fær um að skilja að það er ekki til neitt gott eða slæmt aðeins skinjun hjartans fyrir því hvað er rétt.
Þú lést fortíðina ákvarða nútíðina og hefur áhyggjur af framtíðinni. Jafnvel þó að fortíð og framtíð séu ekki til, og þú hafir aðeins nútíðina. Að lifa augnablikið er það eina sem þú færð um ráðið. Þjóðarstolti var þér innrætt til að einangra þig frá heiminum. Þú einungis takmarkar þig með því að setja gæðastaðla. Sannleikanum verður aldrei svo auðveldlega fyrirkomið í kassa.
Er furða að okkur finnist við vera rugluð og áttavillt? Með valdi hefur verið unnið hörðum höndum að því að telja þér trú um að þú hafir ekkert vald, enga stjórn. En þetta er allt sjónhverfing, eftir að þú hefur einu sinni áttað þig á hvað þú býrð yfir miklum mætti muntu aldrei aftur vinna gegn sjálfum þér. Allt sem þú þarft að gera er að muna eftir því hver þú ert, að þú ert sama sálin og fæddist fyrir öllum þessum árum. Sama sálin þó tími innrættra skilyrða hafi hulið skynjun þína móðu. Eins og Bill Hicks sagði; "Þú ert ímyndun þín sjálfs".
Svo hver viltu vera? Þitt er valið svo byrjaðu á að trúa. Við komum öll frá sama uppruna og erum eitt. Þú áttar þig á þessu þegar merkimiðarnir sem þú gefur passa ekki lengur.
Þú varst fæddur frjáls og munt deyja frjáls. En muntu lifa frjáls? Valið er þitt. Þú ert hinn óendanlegi möguleiki.
Endursagður texti af youtube myndbandi.
http://www.youtube.com/watch?v=SipVykiE6mY&feature=player_embedded
Lífstíll | Breytt 31.7.2010 kl. 07:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.6.2010 | 07:18
Innsæi hjartans.
Sagt er að menntakerfi nútímans komi að uppistöðu til frá Prússnesku kerfi 19. aldar kerfi sem var ætlað að búa til gott starfsfólk og hlýðna hermenn. Starfsfólk sem fylgir fyrirfram gefnum ferlum sem leiða til ákveðinnar niðurstöðu. Framúrskarandi nemendur þessa kerfis eru nær því undantekningarlaust verðlaunaðir, með vinnu við að viðhalda þeim gildum sem kerfið hefur innrætt og auka þannig skilvirkni þess.
Nú má ætla að þekkingu mannsins hafi fleytt það mikið fram að augljósar rökvillur kerfisins hafi verið leiðréttar. En er það svo? Heimurinn situr t.d. uppi með peningakerfi sem er byggt upp á þeirri staðreynd að lánuð eru verðmæti í formi peninga sem aldrei voru til sem raunveruleg verðmæti og af þeim eru innheimtir vextir. Hin viðurkennda þekking gengur út á að þessu kerfi verði viðhaldið með öllum tiltækum ráðum. Að öðrum kosti er okkur sagt að samfélagið hrynji með tilheyrandi hörmungum.
Skortur á frjálsri hugsun skólakerfisins hefur leitt til þess að fólk er tilbúið til að gefa stjórnvöldum sífellt meiri völd í lífi sínu. Vegna þess að því hefur verið innrætt að það búi ekki yfir nægilegri færni til að ráða við eigið líf í flóknu kerfi sem byggir á síaukinni skuldaánauð. Þess í stað er okkur ætlað að vænta þess að stjórnvöld leysi vandamálin. Með þessum hætti framseljum við frelsi okkar til stjórnvalda nútímans sem hafa sannað sig í því að vera verkfæri fjármálakerfisins að vösum almennings sem aldrei fyrr.
Hagfræðingar menntakerfisins eru gerðir að ráðherrum, jafnvel eftir að þeir talandi á torgum hafa gefið almenningi von með því að tjá sig út frá innsæi hjartans. Þegar kemur að völdunum tekur ábyrgðartilfinning við og menntun rökhyggjunnar er notuð til að viðhalda kerfi skuldaánauðar og vonleysis. Þetta er sennilega gert í góðri trú um að verða að gagni með menntun sinni, en þegar kemur að því að endurreisa kerfi sem sligast hefur undan skuldum er langsótt að sannfæra hjartað um að auknar skuldi séu besta lausnin. Þannig er fortíðar þekking rökhyggjunnar sett ofar visku hjartans.
Þú átt þér engan líkan, vertu einstakur. Á alltaf við. Það er aldrei eins mikilvægt að láta sérstöðu sína ráða eins og á krepputímum. Þú ert einstakur og með sérstöðu þinni losar þú þig við samkeppni. Kreppa er oft ekki annað en hörð samkeppni um fánýta hluti þar sem glíman snýst um að komast af á öðru en sköpunarmætti eigin sérstöðu.
Viðurkennd þekking, þ.e.a.s. menntun tekur lítið tillit til sérstöðu einstaklingsins. Menntun gengur út á að þjálfa rökhugsun eftir ákveðnum fyrirfram gefnum leiðum, fremur en að efla sköpunargáfu og frumkvæði. Þessi tegund þekkingar hefur margoft verið til mikilla hindrana fyrir samfélagið og er oftar en ekki notuð til að halda einstaklingnum innan vissra viðurkenndra marka, burtséð frá augljósum villum.
Sem einfalt dæmi má nefna hversu lengi haldið var fram að jörðin væri flöt og hversu illa Galileo gekk að koma þeirri þekkingu á framfæri að jörðin snerist í kringum sólina, í óþökk akademískrar þekkingar þess tíma. Þannig má sjá að þekking sem aðlöguð er að fyrirfram gefnum kenningum þarf ekki að vera rétt. Sannleikurinn getur verið margbreytilegur eftir því frá hvaða sjónarhorni hann er skoðaður. Nýju föt keisarans eru annað dæmi um það.
"Love is all you need" sagði nýi borgarstjórinn í Reykjavík, vonandi auðnast honum að láta hugsun hjartans ráða. Þegar hugsanir hjartans tengjast þeirri skapandi hugsun, sem við köllum Guð, ákvarðar hún hvað þær skapa. Það skírir hvers vegna jákvæðar hugsanir, bænir, trú og sköpunargáfa er nauðsynleg þegar nýjum markmiðum skal náð sem boða raunverulegar breytingar.
Listin að lifa felst í að nýta hugrekki og sköpunarkraft án þess að ganga á rétt annarra, en því betur sem hverjum og einum tekst upp í því efni þeim mun meira mun hann uppskera. Það að lifa í fullu samræmi við eigið hjarta, er að gera öðrum það sem þú vilt að þeir geri þér, ef þú værir þeirra sporum. Hversu erfitt sem það kann að reynast.
Það er aldrei of seint að endurheimta fjársjóð barnshjartans því hann býr innra með hverjum manni. það sem hverjum og einum finnst skemmtilegt og áhugavekjandi, á hvaða sviði sem er, þar er sá fjársjóður sem honum er ætlað að eignast.
Matt 7.12 Allt sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra.
Lífstíll | Breytt 29.8.2010 kl. 14:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.5.2010 | 07:58
Trú og trúarbrögð.
Það getur verið vandkvæðum bundið að staðsetja sína trú. Á tímabili var ég fráhverfur trúarbrögðm og taldi mig jafnframt trúlausan. þegar svo var komið jafngilti það vonleysi, djúpt sokknu í alkahólisma. Lengi eftir að ég hafði kynnst AA þvældist þrjóskan við að viðurkenna handleiðslu Guðs fyrir raunverulegum árangri. Fyrstu sex árin var gangan erfið með reglulegu niðurbroti. "Við fórum að trúa, að æðri máttur gæti gert okkur heilbrigð að nýju" ; átti ekki við mig. Staðfesta trúleysis míns var álíka rökföst og bókstafstrú. Þegar óttinn og vonleysið var orðið þrúgandi laust niður hugsuninni, hverju hef ég að tapa þó svo ég trúi, hverjum þarf ég að gera reikningskili?
Trúarbrögð og trú eru ekki það sama. Í trúarbrögðunum getur einstaklingurinn staðfest og eflt sína trú sem er honum nauðsynleg til að draumar hans nái fram að ganga, í þeim má finna þau lögmál sem gilda til að honum farnist vel s.s þú skalt gera öðrum það sem þú vilt að þeir geri þér. Flest trúarbrögð byggja á reynslu og vitneskju sem safnast hefur saman í gegnum aldirnar, en trúin sjálf byggir á framsýni ímyndunaraflsins og traustinu á að hjartað hafi á réttu að standa. Sá sem er algerlega trúlaus gæti varla farið út í búð til að kaupa mjólk því hann tryði tæpast að hann fengi hana þar. Trúin er þannig samofin daglegu lífi í því smæsta.
Það má því vissulega spyrja hvort trúarbrögð séu ekki óþörf, hvort trúin á ímyndunaraflið og innsæji hjartans sé ekki nægileg fyrir hvern og einn til að komast vel af í þessum heimi? Og hvort trúarbrögðin séu ekki bara gamlar kreddur sem þvælist meira fyrir en verði til gagns?
Kannski á það sama við um trúarbrögðin og slökkviliðið . Ef það kviknar í húsi og það kemur á mettíma, með vatnsbíl, dælur og slöngur, slökkviliðsmennirnir rúllar út slöngunum og tengja þær fumlaust við slökkvibílinn setja kraftmiklar dælurnar í gang, dæla á eldinn og slökkva hann áður en hann veldur verulegu tjóni, væri það aðgerð sem hæfði stað og stund. En ef að þú sætir í mestu makindum heima í stofu við að lesa helgarblaðið og slökkviliðið kæmi og viðhefði sömu fumlausu vinnubrögðin og byrji að dæla vatni upp um alla veggi í íbúðinni þar sem væri enginn eldur, myndi það varla flokkast undir annað en algjört rugl.
Því er réttmætt að spyrja hvort trúrbrögð heimsins séu ekki tímaskekkja. Þau virðast oftar en ekki vera sett fram við aðrar aðstæður og aðra þekkingu en til er í dag, hafa þar að auki verið notuð til að ala á miklu óumburðarlindi meðal menningarheima og í flestum styrjöldum sögunnar hafa trúarbrögð átt sinn sess. Eins geta trúarbrögðin verið jafn nauðsynleg og slökkviliðið, það er gott að þekkja til þeirra þegar á þarf að halda. Þó trúarbrögð hafi verið notuð til að ala á sundurlindi og réttlæta ill verk ætti ekki að dæma þau út frá því. Öll trúarbrögð benda til hins sama; Guðs. Öll verðskulda þau sömu virðingu. Hver sem velur tiltekna trú er að velja sameiginlega aðferð tilbeiðslu og boðunar fagnaðarerindis. Þrátt fyrir það er hver einstaklingur aðeins ábyrgur fyrir sínum gerðum á þeirri vegferð, og hefur jafnframt engan rétt á að kasta af sér ábyrgð á eigin ákvörðunum í nafni trúar.
Það ætti ekki að vera ofviða ímyndunarafli neins að hefja augu yfir veraldlega misnotkun trúarbragða. Horfa í trú til Guðs, þaðan sem þú komst, og þaðan sem þú að lokum snýrð. Því trúin bjargar frá örvæntingu, trúin léttir af áhyggjum, trúin færir frið ofar öllum skilningi, trúin gefur allan styrk. Trúin færir nýjan þrótt, undursamlegan frið og æðruleysi. Með skylmingum rökfræðinnar er hægt að afsanna tilveru þess Guðs sem trúarbrögðin boða og fá niðurstöðu sem snertir ekki hjarta nokkurs manns. Þannig væri hægt á endanum að sitja uppi með spurninguna "hvað er líkt með krókódíl?" og svarið "hann getur hvorki hjólað".
Mitt öflugasta vopn er þögul bæn. -Mahatma Gandhi
Lífstíll | Breytt 24.5.2010 kl. 07:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2010 | 07:23
Sjónhverfing rökhyggunnar.
Þau eru fimm skilningsvitin sem við notumst við í okkar daglega lífi, sjón , heyrn, snerting, bragð og lykt. Þessi skilningsvit er okkur innrætt að styðjast við í gegnum lífið. Innrætingin kemur í formi uppeldis og menntunar. Þar sem kennt er að forðast mistök fortíðarinnar. Því má segja að menntun sé fortíðar vísindi, þar sem flestum spurningu er svarað; svona hefur þetta verið. Þannig hefur nútíðin orðin til fyrir þekkingu fortíðarinnar og framtíðin þegar ákvörðuð á þeim grunni án þess að við fáum miklu um ráðið.
Ef við ætlum að komast út fyrir kassann sem skilningsvitin fimm hafa sett okkur í þá verður að seilast fram á við eftir hinu óþekkta. Gera það sama og barnið, treysta á innsæi hjartans. Spyrja spurninganna vil ég hafa þetta svona, þarf þetta að vera svona? Svarið hlýtur að verða okkur ber að leita, annars verður lífið byggt á reynslu sem er ekki annað en sjónhverfing liðins tíma. Röghyggja sem byggir á fortíð er ekki leitandi vísindi. Þeirri þekkingu má líkja við börn í feluleik sem leita aðeins á fyrirfram ákveðnum stöðum vegna þess að á þeim stöðum hefur leikfélaginn falið sig á áður.
Þegar barnið leitar í feluleik á þekktum stöðum er það ekki vegna þess að það hafi ekki hugmyndaflug til að leita í hinu óþekkta, heldur er það vegna þess að það hefur hlotið hól fyrir að læra að leita í hinu þekkta og finna, þannig er því innrætt í gegnum uppeldi og menntun. Barnið trúir ekki á karlinn í tunglinu vegna þess að því hefur verð innrætt að þar sé hann, barnið veit að karlinn býr í tunglinu þar til því er sagt að vera ekki að þessu bulli, þannig er ímyndunarafl draumanna á svipstundu að engu gert.
Menntun í formi fortíðar vísindia verður til þess að margt af því sem áður var viðurkennt er orðið framandi eða jafnvel óþekkt. Það breytir ekki því að það er til staðar þó svo að skinjun skilningsvitana fimm ná ekki til þess. Því er kenning Krists í fullu gildi "hver sem tekur ekki við Guðs ríki eins og barn mun aldrei inn í það koma". Þrátt fyrir þessa meðfæddu vitnesku hefur innræting heimsins gengið út á að aftengja traust barnsins á innsæi hjartans.
Lífið er sigling þar sem í straumröst kjölfarsins er afrakstur þeirrar orku sem þegar hefur verið notuð og reynd. Ef lífið á aðeins að vera til að nýta þá fortíðar reynslu í formi innrætingar munum við ekki ná að uppfylla þrána eftir því upplifa okkur sem þær orkumiklu og skapandi verur sem við komum í þennan heim til að verða. Heldur munum við upplifa vonbrigði gærdagsins þegar við steytum á þeim skerjum sem framundan eru vegna þess að við höldum að við getum stýrt bátnum best með því að rýna í kjölfarið.
Jesú sagði:Lukas 11.9 "Biðjið, og yður mun gefast, leitið, og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upplokið verða."
Lífstíll | Breytt 17.5.2010 kl. 06:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.4.2010 | 06:56
Listn að velja.
Vestræn menning hefur innrætt okkur gildi þess að velja og hafna, ekki einungis að velja það góða, heldur einnig að berjast gegn hinu illa. Hversu samofið þetta er orðið daglegu lífi má sjá í fyrirbyggjandi leit sjúkdóma, baráttuna gegn eiturlyfjum, stríði gegn hryðjuverkum ofl. ofl.. Hugsanlega gæti þessi athygli á höfnun þess illa leitt til þess að við eigum eftir að upplifa loka stríðið gegn stríðinu.
Eftir því sem ég hugsa lengur um lögmál lífsins verður mér sífellt ljósara að ég get aðeins valið, ég get engu hafnað. Þegar ég hef valið að hafa "fyrirbyggjandi" áhyggjur af heilsuleysi og fjárhagsvanda er stutt í að heilsuleysi og fjárhagsvandi verði sá veruleiki sem ég upplifi. Með því að velja það að hafna því slæma beini ég athyglinni að því sem ég óttast, og hef þar með valið óttann við það slæma.
Því verður það sífellt ljósara hversu miklu máli það skiptir að hverju ég beini athyglinni, um hvað er hugsað. En hvernig getur nokkur maður stjórnað hugsunum sínum? Sem kvikna í raun utan hans sjálfs og koma til hans sem straumur frá hinu óendanlega. Er hægt að snúa við hugsunum sem kvikna vegna óttans við það slæma? Eða á maður kannski ekki að berjast gegn þeim?
Það er erfitt að stjórna uppsprettu hugsananna jafnvel eftir að hafa uppgötvað hvað það er í umhverfinu sem hefur mest áhrif á hugann. Þar er um margt að ræða, s.s. vinnuálag, samskipti við aðra, fréttaflutningur fjölmiðla osfv. Það er ómögulegt að snúa við slæmri hugsun eftir að hún hefur kviknar, en það má reyna að setja aðra betri í staðinn. Það er vonlítið að berjast gegn hugsunum um hið slæma eftir að þær hafa náð tökum á huganum, fyrir þeim getur reynst best að gefast upp og biðja blessunar æðri máttarvalda.
Það getur virst mótsögn að gefast upp fyrir erfiðleikunum og hefur reynst þverhaus eins og mér torskilið, sem þarf alltaf að hafa á réttu að standa . Búandi að þeirri reynslu að vera alkahólisti ætti það að vera auðskilið hvað mikilvægt er að viðurkenna vanmátt. Alkahólismi kenndi mér að aðeins ein leið er fær gagnvart áfengi, að gefast upp. Þó ég viti hvernig lögmálið virkar hefur það ekki reynst sjálfgefið að nýta þessa vitneskju við önnur viðfangsefni.
Maðurinn hefur það val að beina huganum að því jákvæða og upplifa það um leið með tilfinningu hjartans. Það að ætla að berjast gegn því neikvæða beinir athyglinni að því neikvæða og þannig að upplifa neikvæða tilfinningu. Það er miklu auðveldara að komast að því góða með því að velja jákvæða hugsun, heldur en að að dæma um það vonda til að komast þangað sem maður vill. Ráðið er að biðja þess sem mótdrægt er blessunar, það er nefnilega ekki hægt að blessa og dæma samtímis.
Matt. 7,1; Dæmið ekki, svo þér verðið ekki dæmdir. Því með þeim dómi, sem þér dæmið, munuð þér dæmdir, og með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður mælt verða.
Lífstíll | Breytt 3.5.2010 kl. 06:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)


hhbe
naflaskodun
siggith




